Afmælisveislan heppnaðist ótrúlega vel og fengum strákarnir margar flottar gjafir. Innilegar þakkir fyrir það. Annars hafa þeir verið í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa í Álftamýri undanfarna viku og eru ansi sáttir þar. Enda eru þau nú dugleg að dekstra við þá, vöflur amk 2 í viku og alltaf heitur matur í hádeginu.
Strákarnir hafa núna verið frískir í um mánuð og vonum við að svo verði áfram. Þorsteinn tók fyrstu skrefin fyrir stuttu. En þeir fengu kerru og sparkbíl í afmælisgjöf sem er fínt að nota í gönguæfingar. Strákarnir tala endalaust, eða allavega sín á milli... það er aðallega dadad, gakk og ýmislegt annað. Þeir eru ansi hrifnir af nýju leikföngunum en ekkert er þó spennandi eins og eitt stykki sleif og skál.
Gúbbarnir byrja svo hjá nýju dagmömmunni 1.ágúst. Það verður stuð. Sem sagt nóg að gera hjá familiunni
6 ummæli:
dasamlegt! til hamingju med ad allt gangi svona vel saeta folkid mitt! sjaumst e.t.v. i agust :)
nýju myndirnar eru aedi! takk takk takk xoxoxoxox
Hae hae, Florida her! Sendum okkar bestu kvedjur ur solinni. Erum hérna öll að dást að yndisfríðum mönnum. Vonandi gengur vel hjá dagmömmunni. Astarkvedjur Aldis og CO
Here are some links that I believe will be interested
Great site lots of usefull infomation here.
»
Keep up the good work. thnx!
»
Skrifa ummæli